Brúðarbandið á Airwaves

Brúðarbandið mun spila á Airwaves hátíðinni föstudaginn 21 október klukkan 21:20. Við spilum auðvitað á Grandrokk þar sem við slitum barnsgítarnöglunum fyrir rúmu ári síðan. Við hlökkum til að sjá ykkur! :)

2005-10-18 15:58 / Brúðarbandið

Sonic Youth!!

Þá styttist í tónleika snillinganna í Sonic Youth! Brúðarbandið mun kynda undir áheyrendum fyrri tónleika þeirra þann 16. ágúst!!
Það fer hver að verða síðastur að verða sér útum miða því allir miðar eru að seljast upp!!
Við erum að tryllast úr spennu því það verður svooo gaman!
-Og Sonic nátla rúlar! Ó já.

2005-08-11 18:41 / Brúðarbandið

Tryllingur og spilling

2005-03-29 19:49 / Brúðarbandið

Tryllingur og spilling!

Laugardaginn 2. apríl munu magnaðir tónleikar eiga sér stað í Klínk og bank undir yfirskriptinni Tryllingur og spilling.

Hljómsveitirnar sem koma þar fram eru:
Brúðarbandið
Mammút
Brite Light
Viðurstyggð
Donna Mess
Lazy Housewifes
Begga pönk

Skemmtanin hefst uppúr kl. 20 og kostar einungis 500 kellíngar inn!

2005-03-26 11:27 / Brúðarbandið

Tónleikar í Smekkleysu Plötubúð


#26 Laugardagurinn 5. mars, kl. 15:00

: : : Brúðarbandið : : :

Brúðarbandið þarft vart að kynna. Þær stöllur hafa verið ótrúlega
atorkusamar og iðnar frá því hljómsveitin var stofnuð fyrir rétt rúmu
ári. Á fyrsta hálfa árinu lærðu þær á hljóðfærin, sömdu 12 lög og
gáfu út breiðskífuna Meira!.

Í janúar fór Brúðarbandið í tónleikaferð í Bandaríkjunum og heilluðu
biblíubeltið upp úr skónum. Sveitin spilaði m.a. á tónleikum í
Asheville, Chapel Hill, Nashville, Savannah og er skemmst frá því að
segja að uppselt var á flesta tónleika sveitarinnar.

Sveitin er einnig á leið í stutta ferð í tónleikaferð til Svíþjóðar og
Danmerkur í apríl þar sem þær koma fram m.a. á tónleikum með hinni japönsku sveit OOIOO sem leidd er af Yoshimi úr Boredoms. Til gamans má geta að Yoshimi er sú sama og Flaming Lips skífan "Yoshimi Battles the Pink Robots" er nefnd eftir.

: : : Mystic One : : :

Mystic One er eins manns hip hop sveit og er skipuð Sigga úr Twisted Minds. Hann sendi nýverið frá sér breiðskífuna Distribution of Wealth og munu tónleikar hans byggjast á lögum af henni.
_________________
Smekkleysa.is
Karateradio

2005-03-04 00:51 / Brúðarbandið

Tónleikar á föstudaginn!

Það er nú staðfest að Brúðarbandsmeyjar spila ekki einar á Grand rokk föstudaginn 4.mars.
Ónei ó sei sei.
Auk okkar munu hinu prúðu piltar í Skátum spila nokkur af sínum stórkostlegu lögum, þar að auki mun rokksveitin Lirmill storma á svið og síðast en ekki síst mun ameríkani einn sem við kynntumst á tónleikaferðalagi okkar í henni Ameríku stíga á stokk með gítarinn sinn og leika nokkur amerísk lög.
Heitir náunginn sá Rick Weissinger og er hann í hljómsveitinni Zero to 60, en kallar sig Erik Zero þegar hann performerar sóló.
Sjáumst!

2005-03-01 16:43 / Brúðarbandið

Grand rokk 4. mars!

Við ætlum að spila fyrir þig á Grand Rokk föstudaginn 4. mars.
Koma soh!

2005-02-26 15:44 / Brúðarbandið

Brúðarbandið á Gauk á Stöng 24. febrúar

Brúðarbandið mun flytja mússík á Gauk á Stöng fimmtudaginn 24 febrúar næstkomandi.
Ásamt Brúðarbandinu munu Indigo, Jeff Who og Days of Our Lives koma fram.
Húsið opnar klukkan 21:30 og aðgangseyrir er ekki neinn!.

Koma soh! Þið viljið geta sagt barnabörnunum ykkar frá því að þið hafið verið viðstödd fyrstu tónleikana okkar eftir forfrömunartúrinn mikla! :)

2005-02-21 16:12 / Brúðarbandið

Brjáluð afmælisveisla á Grandrokk!

Brúðarbandið mun fagna eins árs afmæli sínu föstudaginn 17da desember klukkan ellefu á Grandrokk. Hanoi Jane mun opna gleðskapinn og Skátar spila fyrir dansi þegar Brúðirnar hafa leikið listir sínar. Auk þess fá tónleikagestir sem eru svo lánsamir að kaupa aðgangsmiða með réttu númeri glæsilegar gjafir frá Brúðunum (sem án efa munu þegar fram líða stundir hafa mikið söfnunargildi) og frumsýnt verður frábært nýtt tónlistarmyndband við hinn gríðarvinsæla smell Sætar Stelpur. Vel hugsanlegt er að tónlistarkonan hugljúfa Berglind Ágústsdóttir komi einnig fram og spili nokkur lög af væntanlegri plötu sinni. Þessi röð á atburðum gæti þó riðlast eitthvað svo að þið viljið vera stundvís.... mkay! :)

Okkur finnst auðvitað að þið eigið öll að koma og gleðjast með okkur. Aðgangseyrir verður litlar 500 krónur og mun renna óskiptur (þ.e.a.s. listamennirnir gefa í alvuru vinnu sína ólíkt ónefndum lúxuspjökkum) til vonandilegs Ameríkutónleikaferðalags Brúðanna. Já, í alvuru, okkur stendur til boða að fara til Nashville! Og Ashville! Þannig að ef þið fílið okkur þá auðvitað komið þið og styrkið okkur og ef þið fílið okkur ekki þá bara hafið þið enn betri ástæðu til að koma og stuðla að því að senda okkur úr landi! ;)

Við eigum afmæli á föstudaginn, við eigum afmæli á föstudaginn...!!!

2004-12-08 15:12 / Brúðarbandið

Brúðarbandið, Fræbbblarnir og Dilemma

Brúðarbandið ætlar að slá sér upp með Fræbbblunum og Dilemmu á Gauk á stöng fimmtudaginn 25. nóvember 2004.
Tónleikarnir byrja klukkan 22 og enda kl. 01 á föstudagsmorgni.
Komiði!

2004-11-23 16:50 / Brúðarbandið

(.oOo.)