Brúðarbandið hefur á tónleikum til sölu búkfatnað af ýmsum toga og í hinum ýmsustu litum. Tjéður búkfatnaður er bæði smart og þægilegur og er prýddur lógói Brúðanna í metallitunum. Þið viljið eiga svonalagað, það er alveg garanterað. Myndir af herlegheitunum eru væntanlegar innan skamms.