Melkorka er myndlistarkona, söngkona og hrútur. Melkorka safnar ljósum af ýmsu tagi og langar mest af öllu að eiga hvítt ljósleiðaratöfratré. Melkorka lék einu sinni í kvikmynd þar sem hún átti systur sem breyttist í sel. Til að forðast allan misskilning skal það tekið fram að Melkorka er stundum kölluð MelK. |
![]() |
![]() |
Sigga er vatnsberi og dramatúrg. Hún er ógift gítarhetja sem hefur strengt þess heit að klæðast ekki brúðarkjól nema á sviði. Átrúnaðargoð Siggu er Danni Pollock því Danni er moþðerfokkingskúl! Sigga drekkur viský og á nærbuxur áritaðar af bassaleikara Violent Femmes. Hún hefur enga trú á læknum. |
Sunna er vog og í samræmi við það er hún bæði trommuleikari og skáld. Átrúnaðargoð Sunnu er fornleifafræðingurinn Lara Croft því ,,hún er mega tölvubeib og á sikk mikið af góðum byssum og svo kann hún allskonar hopp". Sunna á trommukjuða með glimmeri, skærbleika bassatrommu og hvítan kött. |
![]() |
![]() |
Kata er í nautsmerkinu og hefur nýlega unnið að því að fjölga fallegum Reykvíkingum bæði með heimilisiðnaði og innflutningi á írskum karlmönnum. Hún spilar á harmoniku og melódikku. Hennar helsti tónlistarlegi áhrifavaldur er Gylfi Ægisson. Kata hefur aldrei áhyggjur af því að brjóta nögl. |
Unnur er í hrútsmerkinu. Hún er bassaleikari, sagnfræðingur og eldhúsgyðja. Hún á sér þann draum stærstan að leika í kvikmynd leikstýrðri af Cronenberg og hún safnar plötum með Osmond systkinunum. Unni leiðast biðraðir og skemmtistaðir sem selja ekki Campari. Hún er þess sannfærð að hér í heimi sé flest annað hvort of- eða vanmetið og finnst Dustin Hoffman og James Wood dauðsexí. |
![]() |
![]() |
Eygló er fyrst og fremst meyja en líka sólógítarleikari, ljósmyndari og hönnuður. Eygló er yfirmaður kántrídeildar Brúðarbandsins og starfar með neðanjarðarhreyfingu sem vill veg kántrítónlistar sem mestan. Sögusagnir herma að hún sé næsti arftaki Dolly Parton. Eygló spáir því að einn daginn munum við öll vakna hvítklædd í Nashville. |
Gugga er sporðdreki, þó ekki stingandi. Fyrirmynd hennar í tónlistarbransanum er Magne Furuholmen hljómborðsleikari A-Ha. Guðbjörgu leiðast þulir sem tala ofan í verðlaunaafhendingar og hún er hrædd við Beeker í prúðuleikurunum. Guðbjörg hefur þann hæfileika að læra slæma popptexta utanað við fyrstu hlustun og hún er lunkin við að segja orð afturábak. |
![]() |