Bolir til sölu í Illgresi

Brúðarbandsbolirnir eru nú loksins komnir í sölu á stað sem hefur reglulega opnunartíma og stimamjúkt afgreiðslufólk. Það er eðalbúðin Illgresi á Laugavegi 15 (beint á móti Mál og Menningu) sem hefur tekið Brúðarbandsbúkfatnaðinn inn í sitt fína úrval af smart og retró fatnaði. Við mælum því með því að allir sannir aðdáendur sem náðu ekki að versla sér bol í gamla daga meðan við vorum duglegar að selja þá eftir tónleika, skelli sér í Illgresi og fái sér eins og eitt stykki (eða tvö, það er kalt í október...) til að skarta á Loftbylgjuhátíðinni! :)

2005-10-21 15:30 / Brúðarbandið

(.oOo.)