Brúðarbandið komið heim frá Hróa

Brúðirnar hafa nú allar með tölu skilað sér aftur heim til Íslands og erum við kátar og glaðar eftir Hróarskelduna. Við spiluðum fyrir mökk af fólki, rúmlega 4 þúsund manns er okkur sagt, og allir hoppuðu og klöppuðu og öskruðu skál meðan við spiluðum. Dejligt alveg hreint eins og fólk segir í Danmörkunni!

Framundan eru stífar æfingar og samningar enda ætlar Sunna að mæta aftur í faðm okkar á morgun. Við hlökkum mikið til.

Við fengum góðar viðtökur þarna úti og erum þessa dagana að safna saman viðtölum, tónleikaumsögnum, ljósmyndum og kvikmynduðu efni frá víkingnum mikla til að bæta á síðuna okkar. Við látum vita þegar það er allt komið upp, það ætti sosum ekki að taka nema nokkra daga í viðbót :)

Takk þið sem mættuð á tónleikana okkar úti, þið eruð algerar elskur! :)

2005-07-12 12:51 / Brúðarbandið

(.oOo.)