Ferðin til Svíþjóðar var hreint út sagt yndisleg. Það var svo vel tekið á móti okkur: við fengum heilt hús út af fyrir okkur (og það ekkert smá sætt hús) og vorum boðaðar í heitar máltíðir til skiptis í listasafnið og á kaffihúsið á horninu okkur að kostnaðarlausu. Þetta var eins og vera kominn aftur í legið hérumbil, svo mikla öryggistilfinningu öðluðumst við þarna í Ystad.
Við spiluðum í leikhúsinu í Ystad sem er klassískt nítjándu aldar óperuhús með englum í loftinu, gylltu flúri og rauðu flaueli út um allt. Hljómburður hússins er einstakur en þar að auki sá hljóðmaður Sonic Youth um hljóðið og það er óhætt að fullyrða að við höfum aldrei hljómað jafn vel. Við komum fyrstar fram og það var mál manna að við hefðum heillað viðstadda upp úr skónum. Restina af kvöldinu nutum við hinnar mjög svo ljúffengu dagskrár: OOIOO, Sofia Härdig and the Needles, Monkeystrikes og NASH CONTROL. Við enduðum með hinum artistunum á barhoppi og skralli fram undir morgun undir formerkjum alþjóðlegrar tengslamyndunar. Svíþjóð er ljúfur staður og við erum hvenær sem til í að fara þangað aftur. :)
Nú fer í hönd mikil inndæling mynda inn á þessa vefsíðu og er þegar slatti af myndum frá Bandaríkjunum kominn inn hér. Ástæðan fyrir því afhverju þetta gerist svona seint er sú að talvan með Bandaríkjamyndunum okkar hrundi eins og tölvur gera svo gjarnan. Myndir frá Svíþjóð eru væntanlegar á morgun eða hinn og svo ef slíkt interessar ykkur þá eru nokkrar nýjar blaðagreinar okkur tengdar hér :)
Við vonum að þið hafið það gott því við höfum það afskaplega gott. Gleðilegt Júróvisjón elsku aðdáendur! Við sjáumst vonandi fljótlega! :)
2005-05-17 16:50 / Brúðarbandið