Brúðarbandið á Hróarskeldu

Við vonum að þið hafið það öll gott því að við höfum það afskaplega gott! Nú er stóra leyndarmálið nefnilega opinbert! Brúðarbandið mun gleðja augu og eyru Hróarskeldugesta miðvikudagskvöldið áður en ballið byrjar. Þið getið séð okkur hrósað í hástert á opinberu Hróasíðunni á listanum yfir bönd sem munu spila. Við munum spila á nýju sviði sem er nefnt Pavillion Junior og er ný og flottari útgáfa af því sem síðustu ár hefur verið nefnt Camping Stage. Í stað þess að loka þegar hátíðin hefst formlega mun þetta svið halda áfram á fullu og svæðið í kringum það vera helgað lítt þekktum hljómsveitum sem þykja athyglisverðar og munu lítil plötufyrirtæki, tónlistartímarit og forsvarsmenn tónlistartengdra vefsíðna setja upp bækistöðvar í kringum þetta svið. Auk þess mun Danska útvarpið (DR) vera með reglulegar útsendingar frá því sem gerist á þessu svæði.

S.s. við erum voða spenntar og hlökkum mikið til að spila á Hróa. Það mætti jafnvel halda því fram að við ráðum okkur varla fyrir kæti! Annars erum við þessa dagana bara á fullu að spá í nýjum lögum og spila okkur vandlega saman fyrir listahátíðina í Ystad en við verðum einmitt þar í lok mánaðarins.

2005-04-08 14:50 / Brúðarbandið

(.oOo.)