
#26 Laugardagurinn 5. mars, kl. 15:00
: : : Brúðarbandið : : :
Brúðarbandið þarft vart að kynna. Þær stöllur hafa verið ótrúlega
atorkusamar og iðnar frá því hljómsveitin var stofnuð fyrir rétt rúmu
ári. Á fyrsta hálfa árinu lærðu þær á hljóðfærin, sömdu 12 lög og
gáfu út breiðskífuna Meira!.
Í janúar fór Brúðarbandið í tónleikaferð í Bandaríkjunum og heilluðu
biblíubeltið upp úr skónum. Sveitin spilaði m.a. á tónleikum í
Asheville, Chapel Hill, Nashville, Savannah og er skemmst frá því að
segja að uppselt var á flesta tónleika sveitarinnar.
Sveitin er einnig á leið í stutta ferð í tónleikaferð til Svíþjóðar og
Danmerkur í apríl þar sem þær koma fram m.a. á tónleikum með hinni japönsku sveit OOIOO sem leidd er af Yoshimi úr Boredoms. Til gamans má geta að Yoshimi er sú sama og Flaming Lips skífan "Yoshimi Battles the Pink Robots" er nefnd eftir.
: : : Mystic One : : :
Mystic One er eins manns hip hop sveit og er skipuð Sigga úr Twisted Minds. Hann sendi nýverið frá sér breiðskífuna Distribution of Wealth og munu tónleikar hans byggjast á lögum af henni.
_________________
Smekkleysa.is
Karateradio
2005-03-04 00:51 / Brúðarbandið